Samúðin horfin

Nú er öll mín samúð með "þessu" fólki horfin. Það er alltaf sárt að sjá falleg svæði verða framförum að bráð. En það að stunda einhver skemmdarverk verður til þess að hinir hófsömu (líkt og ég) snúast á sveif með vinnuvélunum.

mbl.is Skemmdarverk unnin á vinnuvélum í Álafosskvos
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ekki er útilokað að einhverjir aðrir en sem fylgja Varmársamtökunum hafi gripið tækifærið til að klína skömmina á þau. Að sjálfsögðu þyrfti að rannsaka þessi skemmdarverk eins og hvert annað lögreglumál.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 16.5.2007 kl. 10:36

2 Smámynd: Haukur Viðar

Hvaða fólk ert þú að tala um?

Haukur Viðar, 16.5.2007 kl. 19:16

3 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ekki ætla ég að stjórn Varmársamtakanna hafi staðið fyrir þessum skemmdaverkum, en það er nú samt ekki hægt að neita því að framganga þeirra og orðræða í beinni útsendingu hefur ekki verið til að letja þá einstaklinga sem að þessu stóðu til dáða. Ég skrifaði líka um þetta mál í gær.

Herdís Sigurjónsdóttir, 17.5.2007 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband